
Kneipp vaðlaug

Þriðjudagur | 20. október | 18:00
Vala Baldursdóttur gusumeistari.
Komdu með okkur í þrjár gusulotur þar sem hiti, ilmur og slökun mætast. Á milli lota njótum við samspils heits og kalds í Kneipp vaðlauginni og köldum pottunum á útisvæði Reykjabaða.
Sérsniðinn gusu drykkjarseðill á lónsbarnum.
Gusan fer fram í viðburðarsaunu Reykjabaða, þriðjudaginn 20. október kl: 18:00
Til að taka þátt þarf einungis að bóka aðgang í Reykjaböð og mæta tímanlega. Gusan byrjar stundvíslega kl. 18:00 þann 20. október.
Ekki er greitt sérstaklega fyrir gusuna.
Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í gusuna, hún er opin fyrir alla gesti Reykjabaða.
Já, í samræmi við þann aðgang sem keyptur er, Classic eða Signature.


