Öryggisreglur


Gestir eru beðnir um að kynna sér og fylgja eftirfarandi reglum.

  • Lágmarksaldur er 10 ára í lónið og 18 ára í baðhúsið.

  • Börn yngri en 16 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum einstaklingi (18 ára eða eldri). Börn eru á ábyrgð foreldra eða forráðamanna á öllum svæðinu.

  • Skylt er að fara í sturtu og þvo sér vandlega án sundfata áður en farið er í lón eða baðhús. Sundföt skulu notuð á öllum baðsvæðum.

  • Notkun myndavéla eða síma til að taka myndir eða hljóðupptökur í baðhúsi, búningsklefum og sturtum er stranglega bönnuð.

  • Lónið er náttúrulegt og án klórs. Hitastig lauga er um 38-40 gráður en það gæti þó verið breytilegt eftir veðri og svæðum.

  • Fara skal varlega á blautum svæðum, útisvæðum og í tröppum. Gólf, gönguleiðir og tröppur bæði innan- og utandyra geta orðið hálar þegar þær eru blautar eða kalt er í veðri.

  • Dýfingar og hopp ofan í lónið eru bönnuð. Ekki má klifra á mannvirkjum, steinum eða náttúrulegum formum. Engin sundleikföng eða sambærilegur búnaður er leyfður.

  • Óhófleg ölvun er óheimil. Reykingar, notkun tóbaks, rafsígarettur, nikótínpúðar eða önnur notkun nikótíns er stranglega bönnuð.

  • Mælt er með að drekka vel af vökva og taka regluleg hlé til kælingar til að koma í veg fyrir vökvatap. Upplifi gestur svima, yfirliðskennd eða vanlíðan er ráðlagt að fara upp úr.

Starfsfólk er til staðar til að tryggja öryggi og vellíðan gesta og hefur heimild til að grípa inn í, veita leiðbeiningar eða vísa gestum af svæði ef þörf krefur. Við slys eða vanlíðan skal láta starfsfólk vita strax.

Close-up of a person's fingers touching water, creating ripples and bubbles.

Reykjaböð Hot Springs ehf.
Árhólmum 5
810 Hveragerði
S
kort

@2026 Reykjaböð Hot Springs