
Gjafabréf fyrir upphæð
Nýtist bæði á vef og á staðnum

Jólagjafir fyrir starfsfólkið þitt
Eftir annasamt ár á starfsfólkið skilið að láta sér líða vel. Með gjafabréfi í Reykjaböð getur það slakað á, hlaðið batteríin og snúið endurnært til baka.
Þrjár tegundir gjafabréfa:
Classic: Aðgangur að baðlóni og útisvæði.
Signature: Aðgangur að Baðhúsinu, lounge, ásamt baðlóni og útisvæði.
Upphæð: Þú velur upphæðina og gjafabréfið gildir bæði á vef og á staðnum.
Classic og Signature fást bæði fyrir einstaklinga og pör.
Við aðstoðum fyrirtæki af öllum stærðum við pantanir. Sendu okkur fyrirspurn með því að fylla út formið hér að neðan.

Gjafabréf fyrir upphæð
Nýtist bæði á vef og á staðnum

Hot Springs aðgangur fyrir 2 fullorðna
Verð frá 17.800 kr

Hot Springs & Bathhouse aðgangur fyrir 2 fullorðna
Verð frá 33.800 kr
Reykjaböð eru staðsett á Árhólmasvæðinu við rætur Reykjadals í Hveragerði.
Við erum aðeins 35 mínútur frá Reykjavík og 75 mínútur frá Keflavíkurflugvelli, sem gerir Reykjaböð að kærkomnum viðkomustað á ferðalagi um Ísland.
Hveragerði er blómstrandi bær þekktur fyrir jarðhitann og gróðurhúsin. Reykjadalurinn býður upp á einstaka náttúrufegurð, heita lækinn og fjölbreytta útivistar- og afþreyingarmöguleika.
Hvort sem þú ert að fara Gullna hringinn, Suðurströndina eða bara skjótast út úr bænum, þá eru Reykjaböð staðurinn til að staldra við og hlaða í sig orku úr náttúrunni.
Það er 18 ára aldurstakmark í Baðhúsið.
Reykjaböð eru opin og aðgengileg allt árið, hvort sem þú ekur sjálf/ur, ferðast með hóp eða nýtir almenningssamgöngur.
Með bíl: Við erum aðeins 35 mínútur frá Reykjavík og um 75 mínútur frá Keflavíkurflugvelli.
Með Strætó: Leið 51 og 52 aka til Hveragerðis samkvæmt áætlun Strætó og tengja bæinn við Reykjavík og Suðurland.
Með rútu: Icelandia býður upp á rútuferðir fram og til baka milli Reykjavíkur og Reykjabaða, sem eru í um 35 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Hægt er að bóka rútuferð ásamt Classic eða Signature aðgangi að Reykjaböðum og njóta heimsóknarinnar án þess að hafa áhyggjur af akstrinum.
Icelandia býður einnig upp á dagsferðir um Suðurland þar sem heimsókn í Reykjaböð er hluti af ferðinni.
Nánari upplýsingar um ferðir, brottfarartíma og bókanir má finna á vefsíðu Icelandia.
Ef þú gistir í Hveragerði, eru Reykjaböð í göngufæri frá flestum hótelum og gistiheimilum í bænum.
Já, í Reykjaböðum eru bílastæði fyrir alla gesti sem koma á eigin bíl auk stæða fyrir minni og stærri hópferðabíla.