Skilmálar og afbókunarreglur


Eftirfarandi skilmálar og reglur eru almennir gilda fyrir alla viðskiptavini sem kaupa vörur/þjónustu af Reykjaböð Hot Springs ehf. í gegnum vefsvæði, beina sölu eða í gegnum viðurkennda endursöluaðila.

Bókanir og kaup á þjónustu og/eða vörum

Tekið er á móti bókunum á vefsvæði Reykjabaða, í gegnum söluaðila eða með því að hafa samband við okkur beint. Bókanir eru háðar framboði og eru staðfestar við greiðslu eða samkvæmt samningsskilmálum fyrir viðurkennda endursöluaðila. Mikilvægt er að gefa upp rétt netfang við bókun til að staðfesting á kaupum og rafrænn miði berist kaupanda. Uppgefnar upplýsingar verða jafnframt notaðar til að eiga samskipti við gesti í þeim tilgangi að veita góða þjónustu.

‍Verð og greiðsla

‍Allar pantanir sem gerðar eru á vefsvæðinu þarf að greiða með greiðslukorti um leið og kaupin fara fram. Öll verð á íslenska vefsvæðinu eru í ISK og er virðisaukaskattur ásamt öðrum sköttum og gjöldum innifalinn. Þegar þú hefur hafið bókunarferlið getur þú valið EUR, USD eða GBP sem aðra gjaldmiðla. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði án fyrirvara. Þegar greiðsla hefur verið framkvæmd og/eða reikningur gefinn út, verða engin viðbótargjöld rukkuð nema ef verðhækkanir verða vegna breytinga á lögum eða gjaldeyrisbreytinga.

‍Kaup á þjónustu og/eða vörum‍ ‍

Kaup sem ná yfir fjölbreytta þjónustu og/eða vörur takmarkast af því sem í boði er þegar heimsóknin á sér stað. Allar vörur og/eða þjónusta sem innifalin er í aðgangi/upplifunarpakka, s.s. borðapantanir á veitingastað, bókanir í meðferðir, fylgihlutir og fleira, er háð framboði. Séu viðeigandi vörur og/eða þjónusta ekki í boði af einhverri ástæðu átt þú rétt á endurgreiðslu á þeirri tilteknu vöru/þjónustu eða að breyta tíma- og/eða dagsetningu bókunar þinnar án aukakostnaðar.

‍Við kaup á áskriftar- og skiptakortum og við nýtingu korta, gildir eftirfarandi:

  • Skiptakort gildir fyrir þann einstakling sem skráður er fyrir kortinu, auk eins gests í fylgd með honum ef óskað er.

  • Áskriftarkort gildir eingöngu fyrir þann einstakling sem skráður er fyrir kortinu á gildistíma kortsins.

‍Við notkun á áskriftar- og skiptakortum þarf að framvísa persónuskilríkjum við komu. Misnotkun korts getur leitt til afturköllunar þess af hálfu Reykjabaða. Ekki er hægt að endurgreiða útgefið kort hafi það verið nýtt að hluta. ‍‍ ‍

Rafrænir miðar (e-miðar)

‍Þegar bókun hefur verið gerð á vefsvæðinu færðu rafrænan miða sem gildir einu sinni. Sé reynt að nota sama miða aftur verður honum hafnað.

Miðinn gildir á þeirri dag- og tímasetningu sem valin var í bókunarferlinu og kemur fram á miðanum. Ekki er hægt að ábyrgjast framboð á vöru og /eða þjónustu á öðrum tíma.

‍Miðar sem ekki eru keyptir hjá Reykjaböðum eða viðurkenndum söluaðilum geta reynst falsaðir miðar, stolnir eða glataðir og eru ógildir er svo er. Öll ólögleg endursala eða tilraunir til slíkrar sölu leiða til ógildingar miða án endurgreiðslu.  Þá er hvers kyns afritun eða endurgerð miða ólögleg.  Ekki er hægt að fá miðum skipt fyrir fé.

Aldurstakmark

Aðgangur að lóninu takmarkast við 10 ára aldur. Börn yngri en 16 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum einstaklingi (18 ára eða eldri). Börn eru á ábyrgð foreldra eða forráðamanna á öllu svæðinu. Starfsfólki er heimilt að óska eftir staðfestingu á aldri barns með löggildum skilríkjum og áskilur sér rétt til að neita viðkomandi um aðgang ef ekki er unnt að sýna fullnægjandi skilríki. Aðgangur að baðhúsi takmarkast við 18 ára og eldri. 

Gestir með séróskir

‍Gestir með sérþarfir (t.d. vegna aðgengis eða fæðuofnæmis/fæðutakmarkana) eru beðnir um að láta okkur vita fyrirfram á netfangið á booking@reykjabod.is svo við getum komið til móts slíkar óskir eftir fremsta megni.

‍Boðið er upp á einkabúningsherbergi með 8 skápum með aðstöðu fyrir fatlað fólk, fjölskyldur eða þá sem þurfa sérstakt næði. Til að tryggja aðgengi að því rými þarf að panta með fyrirvara. Gestir með sérþarfir eða fötlun sem eru ekki sjálfbjarga þurfa að hafa með sér aðstoðarmann. Til staðar er hjólastóll til þess að aðstoða fólk við að komast ofan í lónið.

Önnur þjónusta

Við innritun fá gestir afhent viðeigandi armband sem greiðslukortið þitt er tengt við á meðan á heimsókn stendur. Armbandið er bæði lykill að skáp og er greiðslukort fyrir öllum greiðslum meðan á heimsókn í Reykjaböð stendur. Leyfilegt hámark áfengra drykkja sem hægt er að kaupa á hvert armband fer eftir ákvæðum í starfsleyfi. Allar færslur á armbandið eru á eigin ábyrgð. Gestir eru rukkaðir fyrir týnt armband ef þeir geta ekki skilað armbandi við heimsóknarlok.

Rútuferðir til og frá Reykjaböðum eru í boði í bókunarferlinu sem aukaþjónusta á ákveðnum tímum í samstarfi við Icelandia. Þegar þú bókar ferð með upplifunarpakkanum þínum færðu sendan tölvupóst frá Icelandia sem inniheldur farmiða og nánari upplýsingar.

Breytingar á bókun

Óskir þú eftir að gera breytingu á dagsetningu, tímasetningu eða fjölda gesta í staðfestri bókun þá er það gert með því að senda póst á netfangið booking@reykjabod.is. Breytingar eru háðar framboði og kunna að hafa í för með sér viðbótarkostnað. Viljir þú breyta úr dýrari miða í ódýrari, verður mismunurinn ekki endurgreiddur sé breytingin gerð utan afbókunarskilmála. ‍ ‍

Afbókanir og lokanir

Afbókanir einstaklinga og minni hópa

‍Allar afbókanir verða að berast skriflega á netfangið booking@reykjabod.is. Ekki er tekið á móti afbókunum í gegnum síma, samfélagsmiða eða aðrar samskiptaleiðir.  Ef þú mætir ekki á bókuðum tíma án þess að tilkynna innan afbókunarfrests fæst  miði ekki endurgreiddur.  

Hot Springs aðgangur

  • Ef afbókað er með meira en 24 klukkustunda fyrirvara: 100% endurgreiðsla‍

  • Ef afbókað er með minna en 24 klukkustunda fyrirvara: Engin endurgreiðsla

Hot Springs & Bathhouse Spa aðgangur

  • ‍ Ef afbókað er með meira en 48 klukkustunda fyrirvara: 100% endurgreiðsla

  • Ef afbókað er með minna en 48 klukkustunda fyrirvara: Engin endurgreiðsla

Sérstakir pakkar og viðburðir

  • Full endurgreiðsla ef afbókað er með meira en 3 daga (72 klst) fyrirvara nema annað sé sérstaklega tekið fram.

  • Sérstakir skilmálar geta gilt um einstaka viðburði og kemur fram við bókun.

‍ ‍Afbókanir hópa (11 gestir eða fleiri)

  • 11-30 gestir: Afbóka þarf með að minnsta kosti 3 daga (72 klst) fyrirvara til að eiga rétt á fullri endurgreiðslu eða ekki sé reikningsfært.   

  • 31–50 gestir: Afbóka þarf með að minnsta kosti 5 daga (96 klst) fyrirvara til að eiga rétt á fullri endurgreiðslu eða ekki sé reikningsfært. Ef afbókað er með 3 daga fyrirvara er 50% endurgreiðsla.

  • 51-100 gestir: Afbóka þarf með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara til að eiga rétt á fullri endurgreiðslu eða ekki sé reikningsfært. Ef afbókað er með 7 daga fyrirvara er 50% endurgreiðsla.

‍Sérstakir skilmálar gilda um stærri hópa og einkaviðburði.

Skilmálar um afbókanir gilda einnig þegar breytingar verða á fjölda í hóp. 

‍Afbókanir sem berast með skemmri fyrirvara eru ekki endurgreiddar eða eru reikningsfærðar að fullu.

Tilfallandi lokanir

‍Reykjaböð kappkosta að hafa alla aðstöðu og þjónustu í boði fyrir gesti á auglýstum afgreiðslutímum. Reykjaböð áskilja sér þó rétt til að loka starfsstöðvum sínum tímabundið og afturkalla allar bókanir og pantanir þegar ómögulegt er að veita þjónustu fyrirtækisins vegna óviðráðanlegra atvika (force majeure), svo sem vegna veðurs, verkfalla, náttúruhamfara, tilmæla yfirvalda eða hvers kyns frávika sem ekki eru á valdi fyrirtækisins

‍Við áskiljum okkur einnig rétt til þess að loka starfsstöð okkar tímabundið vegna öryggisástæðna, nauðsynlegs viðhalds eða einkaviðburða. Tilkynnt er sérstaklega um slíkar lokanir með hæfilegum fyrirvara. Í slíkum tilvikum verður gestum boðið að færa bókun eða fá fulla endurgreiðslu.

Öryggi og vellíðan

Við biðjum gesti um að kynna sér öryggisreglur Reykjabaða sem eru aðgengilegar á vefsvæði og við komu á baðstaðinn. Söluaðili ber ábyrgð á að upplýsa gesti fyrirfram um öryggisreglur og skilmála sem gilda í Reykjaböðum.

‍Gestir bera ábyrgð á eigin öryggi og skulu ávallt fylgja fyrirmælum starfsfólks og settum reglum. Gestir skulu ganga snyrtilega um svæðið og virða aðra gesti. Vinsamlegast skilið búningsklefa og skápum hreinum og snyrtilegum eftir notkun. Berið ekki bleytu inn á þurr svæði og haldið hávaða í lágmarki.

‍Skylda er að fara í sturtu og þvo sér vandlega án sundfata áður en farið er í lón eða baðhús. Sundföt skulu notuð á öllum baðsvæðum.

‍Notkun myndavéla eða síma til að taka myndir eða hljóðupptökur í baðhúsi, búningsklefum og sturtum er stranglega bönnuð.

Svæðið (utan búningsklefa) er vaktað með öryggismyndavélum (CCTV) í öryggis- og eignavörsluskyni.

Óhófleg ölvun er óheimil. Hámark áfengra drykkja á hvern gest fer eftir ákvæði í starfsleyfi.

Starfsfólk hefur heimild til að vísa ölvuðum einstaklingum frá,neita afgreiðslu og fjarlægja gesti sem sýna óábyrga eða óviðeigandi hegðun. Óviðeigandi hegðun og brot á reglum getur leitt til áminningar, tímabundinnar brottvísunar eða varanlegrar útilokunar frá baðstaðnum. Endurgreiðslur eru ekki veittar vegna brottvísunar.

Starfsfólk hefur jafnframt heimild til að óska eftir leyfis gesta til að framkvæma áfengispróf með öndunarmæli ef grunur vakna um of mikla neyslu áfengis eða annarra vímuefna. Ef mæling sýnir meira en 0,08% áfengismagn, fær gestur hvorki aðgang að böðunum né þjónustu á barnum. Gestum sem neita að taka áfengispróf eiga það á hættu að verða neitað um aðgang eða vísað upp úr lóninu, eftir því sem við á.

Heitu lindirnar eru náttúrulegar og án klórs. Búast má við að hitastig lauga sé um 38 gráður en það gæti þó verið breytilegt eftir veðri. Einnig eru til staðar gufuböð, eimböð og kaldar laugar. Öll nýting aðstöðunnar er á þína eigin ábyrgð. Ef þú ert með sjúkdóm eða glímir við heilsufarstengd þætti sem valda því að óráðlegt er fyrir þig að nýta þér einhvern hluta af áðurnefndri aðstöðu biðjum við þig vinsamlegast um að sleppa því eða ráðfæra þig við starfsfólk okkar áður.

Starfsfólk er til staðar til að tryggja öryggi og vellíðan gesta og hefur heimild til að grípa inn í, veita leiðbeiningar eða vísa gestum af svæði ef þörf krefur.

Dvelji gestir of lengi í heitu vatni eða baðstofu getur það valdið svima, yfirliðskennd eða vanlíðan. Hlustið á líkamann og farið upp úr ef eitthvað er ekki eins og það á að vera. Við slys eða vanlíðan skal láta starfsfólk vita strax. Neyðarbúnaður og skyndihjálp er til staðar og starfsfólk er þjálfað í viðbrögðum við slysum.

Náttúran er hluti af upplifuninni og skal virða hana. Óheimilt er að fara út fyrir afmörkuð svæði. Gangið eftir merktum gönguleiðum. Skiljið ekki eftir rusl né raskið gróðri, jarðmyndunum eða dýralífi á svæðinu.

Ábyrgð, gildissvið og breytingar á skilmálum

Reykjaböð áskilja sér rétt til að gera breytingar á vöru- og þjónustuframboði án fyrirvara ef þörf krefur.

‍Reykjaböð undanskilja sig ábyrgð á öllu tjóni eða kostnaði, skemmdum, slysum, veikindum eða breytingum á áætlunum sökum óviðráðanlegra atvika (e. force majeure) svo sem vegna veðurs, verkfalla, náttúruhamfara, tilmæla yfirvalda eða hvers kyns frávika sem ekki eru á valdi fyrirtækisins sem og á útgjöldum vegna einhverra þessara ástæðna.

‍Við mælum eindregið með því að gestir geymi eigur sínar í læstum skápum. Best er að skilja verðmæti og viðkvæma muni eftir heima eða utan lónssvæðisins, þar sem vatn, raki og hiti geta auðveldlega valdið skemmdum. Reykjaböð taka ekki ábyrgð á persónulegum munum sem tapast, eru stolið eða verða fyrir skemmdum á meðan á heimsókninni stendur. Vinsamlegast athugið að Reykjaböð bera jafnframt ekki ábyrgð á vatnsskemmdum sem gætu orðið á persónulegum munum í vatnsheldu hulstri á svæðinu, hvort sem hulstur hafa verið keypt í Reykjaböðum eða annars staðar. Slíkt tap eða útgjöld því tengd eru á persónulegri ábyrgð gesta.

‍Gestir bera fulla ábyrgð á vörslu, geymslu og notkun eigin persónulegra lækningatækja og lyfja. Komi upp aðstæður sem kalla á bráðahjálp getur starfsfólk veitt fyrstu hjálp innan marka þjálfunar sinnar og kallað tafarlaust til neyðarþjónustu. Slík aðstoð felur þó ekki í sér neina skyldu til að geyma, annast eða meðhöndla persónuleg lækningatæki eða lyf. 

Í þeim tilvikum sem Reykjaböð samþykkja að senda eða koma týndum persónulegum munum til skila viðurkennir eigandi þeirra muna að Reykjaböð beri enga ábyrgð á tjóni, skemmdum, þjófnaði, glötun eða töfum sem kunna að eiga sér stað við sendingu eða afhendingu munanna, hvort sem Reykjaböð eða þriðji aðili sér um slíka sendingu eða afhendingu.

Við ráðleggjum öllum gestum að hafa gilda ferðatryggingu sem er hægt að fá í búsetulandi.

Gildissvið skilmála

‍Allir gestir Reykjabaða eru bundnir af þessum skilmálum og fyrirvörum þótt þeir séu ákveðnir einhliða af Reykjaböðum.

Allar kröfur og málsóknir tengdar þessum skilmálum og vöru/þjónustu fara eftir íslenskum lögum og eru rekin fyrir íslenskum dómstólum.

Breytingar á skilmálum

‍Við áskiljum okkur rétt til að gera breytingar á þessum skilmálum hvenær sem er. Neðst á síðunni má sjá hvenær þjónustuskilmálar voru síðast uppfærðir. Með notkun á vefsvæðinu eftir að breytingar hafa verið gerðar, er litið svo á að þú samþykkir breytta skilmála og skuldbindur þig til að fylgja þeim.

Útgefið 1. apríl 2026

Aerial view of a geothermal hot spring with reddish-brown water in a rocky landscape surrounded by sparse vegetation.
Aerial view of a geothermal hot spring with reddish-brown water in a rocky landscape surrounded by sparse vegetation.

Reykjaböð Hot Springs
Árhólmar
810 Hveragerði
S
kort

@2025 Reykjaböð Hot Springs