Tilfinningin hefur alltaf verið hér. Það er kominn tími til að njóta hennar.

Tilfinningin hefur alltaf verið hér. Það er kominn tími til að njóta hennar.

Við opnum nýjar heitar lindir við rætur Reykjadals í ágúst 2026.

Velkomin í Reykjaböð

Velkomin í Reykjaböð

Reykjaböð er nýtt náttúrulón og heilsulind sem opnar í ágúst 2026 við rætur Reykjadals í Hveragerði. Hér mætast náttúrulegar heitar lindir, baðhús og íslensk náttúra í upplifun þar sem þú getur hægt á, notið augnabliksins og fundið kraftinn í víxlathöfnum milli hita og kulda, hvort sem þú heimsækir okkur á björtu sumarkvöldi eða undir dansandi norðurljósum.

Upplifðu heitu lindirnar

Classic aðgangur

Upplifðu heitu lindirnar

Stígðu ofan í yl sem sprettur beint úr jörðinni. Náttúrulegt jarðhitavatn, sána, kaldar laugar og bar ofan í vatninu skapa upplifun þar sem tíminn hægir á sér.


Hér er hlýtt og notalegt. Láttu þér líða vel.


Verð frá


7.900 kr.

Komdu í ferðalag um baðhúsið

Signature aðgangur

Komdu í ferðalag um baðhúsið

Rými til að hægja á. Ferðastu á milli hita og kulda. Tíu rými bjóða upp á upplifun þar sem hvert skilningarvit fær að njóta sín.


Bókaðu meðferð, upplifðu fjölbreyttar baðathafnir og njóttu kyrrðarinnar.


Gefðu þér tíma til að vera. Þú átt það skilið.


Verð frá


15.900 kr.

Njóttu bragðanna

Bistró og bar

Njóttu bragðanna

Fáðu þér drykk meðan þú baðar þig eða gríptu þér bita á veitingastaðnum okkar. Stilltu þig inn á takt náttúrunnar. Við erum alltaf á vaktinni. Þú þarft bara að njóta.

Njóttu bragðanna
Hreiður í hjarta Reykjadals. Kærkomin pása frá amstri dagsins.

ÍSLAND 64.0476° N, 21.2220° V

Hreiður í hjarta Reykjadals. Kærkomin pása frá amstri dagsins.

Loading map…

Staðsetning

Finndu okkur við rætur Reykjadals

35 mín frá Reykjavík
75 mín frá Keflavíkurflugvelli
15 mín frá Selfossi


Stutt frá borginni. Kærkomin pása á leið um Gullna hringinn eða Suðurlandið.

Láttu upplifunina endast lengur

Láttu upplifunina endast lengur

Hot Springs Lodges by The Greenhouse eru staðsettir beint á móti Reykjaböðum. Þar bíða notalegir hótelbústaðir með næði, þægindum og útsýni yfir náttúruna. Byrjaðu daginn á kyrrðinni, endaðu hann í heitu vatni og leyfðu ferðinni að vara aðeins lengur.