Baðhús

Komdu í ferðalag skynfæranna.

Upplifðu allt sem íslensk baðmenning hefur upp á að bjóða.

Upplifðu allt sem íslensk baðmenning hefur upp á að bjóða.

Gefðu þér tíma til að vera. Það liggur ekkert á.

Gefðu þér tíma til að vera. Það liggur ekkert á.

Róandi nudd. Endurnærandi meðferðir. Innblásnar af íslenskri náttúru og hannaðar til að færa þér dýpri ró og endurnýjun.

Heitar lindir og baðhús

Signature aðgangur

Heitar lindir og baðhús


  • Aðgangur að baðlóni og baðhúsi.

  • Ótakmarkað aðgengi að útisvæði með viðburðasaunu, köldum pottum og Kneipp laug.

  • Armband sem virkar sem læsing á skáp og sem greiðslukort.

  • Almennur búningsklefi og lokaðir sturtuklefar með hársápu, hárnæringu og líkamssápu, snyrtiaðstaða og hárþurrkur.

  • Afnot af handklæði, slopp og inniskóm.

  • Drykkur að eigin vali á lónsbar.


Verð frá


15.900 kr.

Hvernig dagurinn þinn getur litið út

Hvernig dagurinn þinn getur litið út

Dagurinn byrjar um leið og þú stígur inn. Þú færð armband og handklæði, skiptir um í rúmgóðum búningsklefum og tekur fyrstu skrefin inn í baðhúsið.


Þar leiðir ferðalagið þig um fjölbreytt vellíðunarrými þar sem hiti, kuldi, vatn, ilmur og kyrrð vinna saman. Snjóherbergi, gufubað, jurtalaug, upplifunarsturtur, þurrgufa og slökunarrými hafa hvert sinn eigin takt. Þú getur einnig bætt við nuddi, andlits- eða líkamsmeðferð, flotmeðferð eða annarri vatnsmeðferð og gefið líkama og huga tíma til að hægja á sér.


Þegar líkaminn er orðinn hlýr tekur steinefnaríkt jarðhitavatnið við. Slakaðu á í heita lóninu og prófaðu síðan viðburðasánu, kalda potta og Kneipp vaðlaug þar sem víxl milli hita og kulda vekur skynfærin og endurnærir líkamann. Ef þú vilt dvelja aðeins lengur bíður lónsbarinn með drykki sem þú nýtur án þess að fara upp úr vatninu.


Ljúktu deginum á Réttum veitingastað með mat og drykk sem sækir innblástur í íslenskar árstíðir og hráefni úr nærumhverfinu.


Á sumrin nýturðu langra kvölda undir opnum himni. Á veturna baðarðu þig í hlýju vatni með stjörnur eða norðurljós yfir höfðinu þegar aðstæður leyfa.

Heitar lindir

Baðhús

Útisturtur

Kneipp vaðlaug

Sána

Kaldir pottar

Jurtalaug

Snjóherbergi

Gufubað

Upplifunarsturtur

Eldstæði

Flotlaug

Njóttu ávinningsins

Loading map…

Staðsetning

Finndu okkur við rætur Reykjadals

35 mín frá Reykjavík
75 mín frá Keflavíkurflugvelli
15 mín frá Selfossi


Stutt frá borginni. Kærkomin pása á leið um Gullna hringinn eða Suðurlandið.

Algengar spurningar

Er aldurstakmark í baðlónið og baðhúsið?

Lágmarksaldur í heitu laugarnar hjá Reykjaböðum er 10 ár.


Baðhúsið er eingöngu ætlað gestum sem hafa náð 18 ára aldri.


Foreldrar og forráðamenn


Öllum gestum yngri en 18 ára skal fylgja foreldri eða forráðamaður. Einn fullorðinn má hafa umsjón með að hámarki tveimur börnum.


Af öryggisástæðum og með tilliti til annarra gesta skulu börn vera undir stöðugu eftirliti meðan á heimsókn stendur.


Starfsfólk getur óskað eftir að fá staðfestingu á aldri barns með því að skoða gilt vegabréf eða skilríki. Ef ekki er hægt að framvísa slíkum gögnum er Reykjaböðum heimilt að synja um aðgang.


Gestum er velkomið að koma með börn yngri en 10 ára í húsakynni Reykjabaða. Þau mega þó ekki fara ofan í laugarnar og einn fullorðinn þarf ávallt að vera með barninu utan baðsvæðisins, til dæmis á Réttum veitingastað.


Hópar barna og ungmenna


Fyrir skipulagða hópa barna yngri en 13 ára þarf einn fullorðinn umsjónaraðila fyrir hvert tvö börn.


Fyrir skipulagða hópa ungmenna á aldrinum 13 til 17 ára þarf að lágmarki einn fullorðinn umsjónaraðila fyrir hver tíu ungmenni.


Umsjónaraðilar bera ábyrgð á hópnum allan tímann og skulu vera með honum í laugunum meðan á heimsókn stendur. Þeir skulu sjá til þess að farið sé eftir öryggisreglum Reykjabaða, sýnt sé tillit til annarra gesta og að hópurinn stuðli að rólegu og notalegu umhverfi.


Umsjónaraðilar mega ekki neyta áfengis meðan þeir bera ábyrgð á hópnum og bera jafnframt ábyrgð á að gengið sé frá öllum ógreiddum kostnaði áður en hópurinn yfirgefur Reykjaböð.